Svanhvít Helga

Verið velkomin

10.01.2010 13:32:56 / svana82

Gleðilegt ár :)

Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir þau gömlu...
Rosalega líður tíminn hratt og eru í þessum töluðu orðum eru 10 dagar búnir á árinu... þetta þýtur áfram

Hef samt voðalítið að segja eitthvað.... er byrjuð í vaktavinnu aftur hjá Kynnisferðum og er það svolítið skrítið frá því að hafa verið að vinna 8-4 seinasta eina og hálfa árið.... en það venst aftur..

En hvað um það
bless bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2009 00:35:49 / svana82

Gleðileg Jól

Gleðileg Jól gott  fólk :)
Sit núna heima í Eikjuvoginum gjörsamlega að springa eftir að hafa verið í Brúarlands fjölskylduboði í Grindavík hjá henni Kiddu :) Takk fyrir mig 

Fékk margar og flottar jólagjafir... 2 bækur, saltaskál, snyrtidót, baðsápu, kökuspaða og kökuskeiðar, ilmvatn, göngusokka og sokkabuxur :)   Fer ekki í jólaköttin í ár :)





Gleðileg jól dúllurnar mínar :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2009 17:23:30 / svana82

Þetta er lifandi

Ég er víst á lífi :) Var að henda inn myndum frá Danmerkur ferðinni minni í haust :)

http://www.flickr.com/photos/svanhvithelga/sets/72157622941224406/

Klikið á slóðina eða getið líka fundið þær undir myndir-Ferð til Horsens :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 22:38:57 / svana82

Myndir

Var  að setja inn  nokkar myndir  inn  á Flickr síðunna mína, getið fundið þær hérna á  síðunni undir Myndir- Re16 og Re 17

http://www.flickr.com/photos/svanhvithelga/sets/72157622447953127/ eða beint á þessum tenli :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 19:13:36 / svana82

fínasta lag :)

http://baggalutur.is/mp3/Baggalutur_Thetta_Er_Buid.mp3

Sett textann með :)

ÞETTA ER BÚIÐ

Faðir, má ég eiga við þig orð?

Nú ættum við að leggja öll spil á borð.

Ég þarf að vita hvað vakir fyrir þér.

Hvað verður nú um þetta sker?

 

Þeir segja þeim sem hafa mestallt misst

að meiddin verði örugglega kysst.

En ef ég blákalt yfir sviðið lít

þá erum við í djúpum skít.

 

Þetta er búið – algerlega búið.

Sorgbitin sitjum við

og sönglum út í náttmyrkrið:

Helvítis fokking fokk.

Helvítis fokking fokk.

 

Skunkarnir sem eyðilögðu allt

og ofurseldu landið þúsundfalt;

við skulum bleyta hjá þeim buxurnar

binda þá – og gleyma hvar.

 

Veistu, allt sem þjóðin þarf er hefnd.

Við þurfum enga reikningsskilanefnd.

Við þurfum gúlag og gapastokk,

góða skapið og slípirokk.

 

Þetta er búið – algerlega búið.

Kjarklítil krjúpum við

og kjökrum út í svartnættið:

Horngrýtis flennifokk.

Dómadags fimbulfokk.

 

Þetta er búið – gersamlega búið.

Grátbólgin grenjum við

og görgum hás á sjónvarpið.

 

Þetta er búið – endanlega búið

Mökktimbruð mókum við

með móral eftir gærkvöldið.

Helvítis fokking fokk.

Helvítis fokking fokk.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2009 15:38:49 / svana82

Ísland er land þitt...

Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar
Ísland er fleki af dýrustu gerð
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar
Ísland á reki í sjónum þú sérð

Ísland í forsetans orðanna skrúði
Ísland sem bankana auðmönnum gaf
Ísland sem sonanna afrekum trúði
Ísland er land sem á verðinum svaf

Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir
Íslensk er trúin: "Það kemst allt í lag"

Íslensk er bjartsýna alheimskuvissan
um íslenskan sigur í sérhverri þraut
Íslensk er góðæris átveisluhryssan
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut

Ísland er landið sem öllu vill gleyma
sem Ísland á annarra hlut hefur gert
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert

Íslandi stýra nú altómir sjóðir
Ísland nú gengur við betlandi staf
að Íslandi sækja nú alls konar þjóðir
Ísland er sokkið í skuldanna haf.

Höf: Hallgrímur Helgasson.



» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2009 22:51:34 / svana82

keyrandi langferðabíl

Búið að vera meira flakkið á mér um helgina og ekki slæmt að fá borgað fyrir það ;)

Í gær laugardag  fór ég í Bláa Lónið og síðan í beinu framhaldi í stuttan Gullfoss, Geysi og Þingvalla ferð.

Í dag er ég búin að þræða Snæfellsnesið eins og það leggur sig og hafði gaman af því.
Byrjaði á því að keyra Hvalfjörðin, þaðan í Borgarnes, Stopp á Borg á Mýrum, stopp við Vegamót, og svo má lengi telja áfram,  stoppaði á Arnarstapa, Djúpalónssandi, Hóla hólar en þar keyrir maður inn í gíg (mjög flott), Hellissandur en þar var smá tæknilegt stopp, þurfti að taka olíu og síðan þaðan brunað í Bjarnarhöfn og þar fengu útlendingarnir að smakka hákarl og voru viðbrögðin misjöfn ;) þaðan í Stykkishólm og síðan heim á leið til Reykjavíkur.

Fínasti rúntur eða um 540 kílómetrar og ánægðir ferðamenn í lok dags J


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2009 22:37:44 / svana82

Ferðalangurinn komin til byggða

Þá er ég komin heim í Eikjuvoginn eftir 13 daga ferðalag. Hlakka bara til að sofa í mínu eigin rúmi í nótt :)
Ferðalagið byrjaði á því að bruna austur á Egilsstaði en í Jökulsárhlíð sem er ekki langt frá var ættarmót Ketilstaðarættar á Ketilsstöðum og er mín víst komin í nefnd fyrir næsta ættarmór hjá þessari ætt, að ég held eftir 5 ár.
Þaðan var burrað yfir Hellisheiði eystri og í Þistilfjörðinn fagra og fór beint í Brúarland og þarf var systkina /fjölskyldumót um seinustu helgi, það vantaði ekki marga upp á það að allt Brúarlandsfólkið væri saman komið og  var það mjög gamana að hitta alla :)

Skrifa meira um þetta seinna, ætla að fara að skella mér í bælið :)

Góða nótt 

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2009 21:17:13 / svana82

Smá leikur :)

1.Taktu upp gsm símann þinn.
2. Farðu í innhólf.
3. Stoppaðu þegar þú hefur talið tíu sms og svo notaru smsin sem svör við spurningunum hér fyrir neðan.




1. Hvað mundir þú segja ef kærastan myndi halda framhjá þér??
Frelsinneign þín hefur hækkað um 5000 kr

2. Hvað segir þú alltaf við besta vin þinn??
Ég er að vera batterísslaus þannig síminn gæti dáið

3. Hvað er það fyrsta sem þú myndir segja ef strætó myndi keyra á vin/vinkonu þína?
ÆI mér þykir það leiðinlegt

4.Hvaða sms hrærði þig mest?
Þetta kom bara á óvart.

5. Hvað segir mamma þín alltaf við þig áður en þú ferð að sofa??
Fannstu jarðskjálftan...

6. Hvað myndir þú öskra ef þú myndir vinna margar milljónir??
Þú keyrir fyrir gömlu konuna

7. Hvað myndir þú vilja segja við Guð ef þú værir alveg viss um að hann væri til?
Þolir þú ekki smá sveitalykt

8. Hvað er það sem þú vilt helst heyra?
Nú hvað gerði hann af sér?

9. Hvað myndir þú segja ef mamma þín myndi klippa af þér hárið í svefni?
Lýst vel á það, okkur ís?

10.Hvað er það rómantískasta sem hefur verið sagt við þig?
Er á leiðinni, sé þig þar

11. Hvað myndir þú segja ef þér yrði sagt upp í vinnu?
Hehe ég tók ekkert eftir því...


Endilega setjið svörin í comment :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2009 22:47:22 / svana82

haha

Alltaf tekst mér að gleyma þessari síðu....og blóta í laumi þegar ég sé hvað ég er ódugleg við það að skrifa hérna inn.

Nóg er búið að vera að gera síðan ég skrifaði seinast inn... handboltinn er búinn í bili en ég stefni á það að vera með aftur næsta vetur.. ég sé stelpurnar ekki eins oft og í vetur og liggur við að ég sakni þeirra smá núna :O)
Ég skrapp norður í Brúarland í 5 daga og var það svo gott að komast aðeins út úr bænum og norður í sveit, í þessari ferð náði ég að hlaða batteríin fyrir sumarið í vinnunni :)
Tók 1 próf í kvöldskólanum í Þýs 103 og fékk einkunnina 6 þar og síðan var ég í Sál 303 og var það símats áfangi og því ekki lokapróf en það fékk ég einkunnina 7, mjög sátt :)

Ég varð árinu eldri 16 maí og er mín orðin 27 ára...

Núna um hvítasunnuhelgina er síðan farið á smá flakk með mömmu og erum við að fara í fermingarveislur sem verða 2 að þessu sinnu.. á laugardeginum er Harpa María Bensa frænda dóttir að fermast á Akureyri og á Sunnudeginu er Hrannar Jonna frænda sonur að fermast á Húsavík... og þar tökum við upp einn farþega til viðbótar en hann er að koma úr sauðbuðinum en það er Jónas Þór bróðir og fer  með okkur aftur til Rvk,,,,

Þetta er allt í bili, læt fylgja með einn brandara  :)

Bæjó

Hæ ég heiti Lísa

Stór trukkur stoppar á rauðu ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona stekkur út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar. Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja. "Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu." Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram.

Þegar trukkurinn stoppar aftur á næsta rauða ljósi, stoppar stúlkan hann aftur. Hún stekkur út úr bílnum sínum og bankar á dyrnar hjá bílstjóranum. Aftur skrúfar hann niður rúðuna. Sú ljóshærða segir skýrt og greinilega: "Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu. Bílstjórinn hristir hausinn og hunsar hana aftur og heldur áfram niður götuna. Á þriðja rauða ljósinu, þá gerist það sama í þriðja sinn. Eins og stormsveipur stekkur sú ljóshærða út úr bílnum, hleypur að dyrum bílsins og bankar. Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna. Enn og aftur segir sú ljóshærða: "Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu."

Ljósið verður grænt og hann keyrir umsvifalaust aftur af stað fram að næsta rauða ljósi. En þegar hann stoppar í þetta skipti, þá drífur hann sig út úr trukknum og hleypur aftur að bíl ljóshærðu konunnar.

Hann bankar á bílrúðuna og þegar hún skrúfar hana niður, segir hann: "Hæ, ég heiti Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN."


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2009 21:22:13 / svana82

Thíhíhíhí

Það var eitt sinn ljóska sem var orðin þreytt á ljóskubröndurum og vildi helst koma sér úr þessum minnihlutahóp.Hún ákvað því að lita á sér hárið brúnt og koma sér þannig í hóp þeirra sem tekið er mark á.Eina helgi í ágúst fór hún í bíltúr uppí sveit.Hún var ekki komin langt þegar hún sá féhirði smala fjöldann allan af kindum. Verandi dolfallin aðdáandi fjórfætlinga stoppaði hún bílinn og gaf sig á tal við féhirðinn.

Eftir nokkurt smátal spurði hún hirðinn hvort að hún mætti eiga eina kind ef hún gæti giskað á hversu margar kindur hirðirinn var með.Hirðirinn var viss í sinni sök um að það gæti hún aldrei og tók áskoruninni."Ljóskan"okkar hugsaði sig vel um og að lokum kom hún með töluna 294.

Hirðirinn trúði ekki sínum eigin eyrum því að það var akkúrat fjöldi kindanna. En vegna þess að hann var heiðarlegur að eindæmum leyfði hann henni að velja eina kind."Ljóskan"tók sér góðan tíma en að lokum valdi hún eina sem var mun líflegri en allar hinar.

Hirðirinn leit á hana og spurði: "Ef ég get giskað á rétta háralit þinn,má ég þá fá hundinn minn aftur?".



Mamma og pabbi

Nonni litli opnaði dyrnar að hjónaherberginu og sá að pabbi lá á bakinu og mamma hossaði sér uppi á honum. Um leið og mamma kom auga á Nonna hætti hún, klæddi sig og fór fram. Þegar Nonni sá hana spurði hann “Hvað voruð þið pabbi eiginlega að gera?”

Mamman alveg vandræðaleg og ekki tilbúinn að útskýra þetta fyrir Nonna. “Já”, segir hún, “Þú veist hvað hann pabbi þinn hefur stóran maga… og ég þarf stundum að hjálpa honum við að fletja hann niður!”

“Það er algjör tímasóun hjá þér”, sagði Nonni litli, alltaf þegar þú ferð í Kringluna á fimmtudögum þá kemur konan í næsta húsi, fer niður á hnén og blæs pabba upp aftur!”


Vona að þetta brjóti upp daginn hjá ykkur elskurnar mínar :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2009 23:24:09 / svana82

hahahha :)

Ég er ekki sú duglegasta við það að skrifa hérna inn en ákvað  að setja þetta hingað inn og sýna að ég er á lífi:)

K æri eiginmaður.
Ég skrifa þér þetta bréf því ég hef ákveðið að fara frá þér.
Ég hef verið þér góð eiginkona í sjö ár án þess að það hafi skilið nokkuð eftir.
Þessar síðustu tvær vikur hafa verið algjört helvíti.
Það sem fyllti mælinn var þegar yfirmaðurinn þinn hringdi í dag til að segja mér að þú
hefðir sagt upp vinnunni þinni !!!!
Hvað varstu eiginlega að hugsa ??????
Í alvörunni, bara í síðustu viku komstu heim úr vinnu og tókst ekki einu sinni eftir því að ég hafði
farið í klippingu . Ég eldaði meira að segja uppáhalds matinn þinn og til að reyna að
vekja athygli þína klæddist ég glænýjum sexý náttkjól um kvöldið !!!!
Þú hinsvegar komst heim,gleyptir í þig hluta af matnum á innan við mínútu, fórst svo upp í rúm þar sem þú gláptir á fótboltaleikinn í sjónvarpinu eins og þú gerir ALLTAF ...áður en þú steinsofnaðir!!
Þú ert alveg hættur að segja að þú elskir mig og ert líka alveg hættur að snerta mig !
Annaðhvort ertu búinn að vera að halda framhjá mér eða elskar mig hreinlega ekki lengur.
Hver sem skýringin er.....þá er ég farin frá þér.
Ps. Ekki reyna að hafa upp á mér.....því þú verður bara fyrir vonbrigðum því ég og Halldór bróðir þinn
höfum ákveðið að hefja búskap saman.
Vertu blessaður.......!
Þín FYRRVERANDI eiginkona !

Sagan endar þó ekki þarna...........
Kæra fyrrverandi eiginkona.
Mig langar að byrja á að segja þér að ekkert hefur glatt mig eins mikið lengi og að fá
bréfið frá þér í dag.
Það er rétt hjá þér að við höfum jú verið gift í sjö ár en að þú skulir
halda því fram að þú hafir verið mér góð eiginkona þessi sjö ár.....er ansi
langt frá sannleikanum verð ég að segja.
Rétt skal vera rétt og til að útskýra mína hlið á málunum þá þér að segja horfi ég svona oft á fótboltann í sjónvarpinu til að losna við þurfa að hlusta á þetta stanslausa röfl í þér út af öllu og öllum ! Verst að það
virkar ekki eins vel og ég hefði viljað ! Og bara svo að þú vitir það þá tók ég
VÍST eftir því að þú hafðir farið í klippingu í síðustu viku. En málið var að mér þótti klippingin
bara svo misheppnuð og hrikalega ljót enda leistu út eins og karlmaður! Og þar sem móðir mín elskuleg kenndi mér að segja frekar ekki neitt ef maður hefði ekkert fallegt að segja.. ....ákvað ég að þegja !
Eitthvað hefur þú svo ruglað mér saman við hann Halldór bróður þegar
þú segist hafa eldað uppáhalds matinn minn því þér að segja hætti ég að borða svínakjöt fyrir rúmum sjö árum
síðan !!! Ástæðan fyrir því að ég fór að sofa þegar þú klæddist nýja sexý náttkjólnum þarna um kvöldið var einfaldlega sú að þegar ég sá verðmiðann aftan á náttkjólnum gat ekki annað en velt því fyrir mér hvort það gæti virkilega verið tilviljun að kjóllinn kostaði 3.999 kr. og að Halldór bróðir hafði fengið lánaðan hjá mér 4 þús. kall fyrr um daginn!!!!!!
En bara svo að þú vitir það þá elskaði ég þig þrátt fyrir allt og vonaðist til að við gætum reynt að
laga það sem farið hafði úrskeiðis í hjónabandinu.
Þannig að þegar ég svo uppgötvaði að ég hefði unnið í 572 milljónir í víkingalottoinu í dag ákvað ég
að segja upp vinnunni minni og koma þér á óvart með því að kaupa handa okkur tvo miða til Jamaika.
En þegar ég kom heim varst þú farin og mín beið bréfið frá þér.
Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu.
Ég vona bara að þú finnir þá fyllingu í þeirri ákvörðun sem þú hefur tekið.
Lögfræðingurinn minn hefur tjáð mér að með bréfi þínu hafir þú fyrirgert rétti þínum til lottovinningsins
þannig að því miður fyrir þig er hann er alfarið minn.
Vona að þú hafir það bara gott í framtíðinni.
Já og meðan ég man...........er ekki alveg viss hvort ég sagði þér það nokkurntímann en Halldór bróðir er ekki
fæddur Halldór....heldur....Halldór a .
Vona að það komi ekki að sök.
Með ótrúlega góðri kveðju frá Jamaika....
Hinn moldríki og frjálsi FYRRVERANDI eiginmaður þinn!

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2009 14:19:08 / svana82

Hæhó

Ég er á lífiJ

Hef ekki verið mikið að sinna bloggsíðunni því ég hef eiginlega eingöngu snúið mér að facebook en ég ætla að reyna  að vera duglegri við það að skrifa hérna inn....

 Ég er búin að brasa alveg heilann helling núna í janúar, vinna, skólinn er byrjaður aftur og núna er ég í 2 áföngum sem er einum færra en á seinustu önn....og handboltinn er kominn á fullt eftir ja jólafrí...fór helgina 10-11 jan í óvissuferð með hanboltastelpunum mínum var gert fullt af vitleysu og síðan endað í sumarbústað og gist það og var það svo gamanJ  

Eftir það þá tóku við næturvaktir á Bsí og get ég ekki sagt að það hafi verið mikið um að vera og þegar bílstjórarnir voru farnir heim þá dundaði ég mér við það að lesa skólabækurnar eða eitthvað annað....

 Síðan núna seinasta föstudag þá fór ég á Þorrablót A vaktarinnar í vinnuni og var það mikið fjör og enn meira drukkið, enda var ég hálf asnaleg þegar ég vaknaði og var fljót að hendast upp í rúm aftur og steinsofnaði...

Í gærkvöldi fór ég á þorrablót númer 2 og þá með Þingeyingafélaginu og fór með mömmu, Önnu, Kiddu og Sigga ásamt fleirum og var það mjög gaman en ég var þar ekki lengi því þaðan fór ég í 27 ára afmælið hans Davids en þar var haldið heima hjá þeim Ingu Rúnu og vil ég þakka fyrir mig:=)


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 16:57:03 / svana82

Gleðilegt ár

Tíminn milli jóla og nýárs hjá mér hefur einkennst af vinnu og meiri vinnu og ekki kvarta ég yfir því:d

Hef ekki mikið að segja og vil óska ykkur gleðilegs nýs árs og takk fyir það gamla:haha:

      


Gleðilegt ár öll sömul

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 14:58:17 / svana82

Gleðileg Jól

Vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla:)

Hafið það gott yfir hátíðarnar

   

Jólakveðja úr Eikjuvoginum

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 38433
Klukkan
Dagsetning
18. mars 2010
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
RSS tengill
Leitarbox

Börnin/litlu púkarnir
Tímaþjófur